þriðjudagur, júní 23, 2009

Í dag lærði ég það að við það að gefa blóð brennir maður jafn mikið af kalóríum og ef maður myndi hamast í ræktinni í meira en klukkutíma (óstaðfest fullyrðing frá hjúkku í Blóðbankanum).

Þetta fundust mér frábærar upplýsingar. Mér leiðist nefnilega að fara í ræktina. Ég er að hugsa um að reyna að koma því í verk að gefa blóð 4 sinnum í viku og þá þarf ég ALDREI að mæta í ræktina.

Seinna!