Núna, þar sem að ég er loksins orðin gjaldgeng í háskólanám, þá rignir yfir mig tilboðum í háskóla. Kannski ekki tilboðum, meira svona áróðurspósti. Þó svo að ég sé löngu búin að skrá mig í HÍ þá vita HR, Bifröst og HA ekki af því og eru búin að senda mér þó nokkuð magn af pósti. HR sendi ég bara fingurinn, þar sem ég hef ákveðið að HR sé eins og Verzló og ég þoli ekki Verzló... Svo kenna þeir ekki neitt sem ég hef áhuga á að læra.
Bifröst og HA tókst hins vegar að heilla mig upp úr skónum á skólakynningunum og þegar ég fór og skoðaði Bifröst þá er ég ekki frá því að mig hafi langað að fara í nám þangað. En nei, þeir kenna ekkert sem ég vil læra en hafa samt sent mér ekki eitt, ekki tvö, ekki þrjú heldur fjögur bréf. HA gæti ég líka vel hugsað mér að nema við en nei... Þó svo skólinn sé búinn að senda mér 2 bréf þá verð ég að hafna boðinu og fara í HÍ...
Þetta lætur mig þó líða vel með sjálfa mig. Þessir skólar eru auðvitað bara að senda mér bréf og ekki öllum hinum skrilljón nýstúdentunum á landinu... Bifröst þakka ég svo kærlega fyrir áhugann, en sorrý... Þið kennið ekkert sem mig langar að læra.
Seinna!
Subscribe to:
Comment Feed (RSS)



|